Aðalfundur
Aðalfundur Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) verður haldinn að Borgartúni 35, Reykjavík, í fundarsal á jarðhæð miðvikudaginn 16. mars 2016, kl. 15:00
Dagskrá fundarins er eftirfarandi, í samræmi við 6. gr. samþykkta sjóðsins.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi Tryggingarsjóðs sl. starfsár.
- Ársreikningur Tryggingarsjóðs fyrir liðið reikningsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram.
- Analytica kynnir árangur eignastýringaraðila við ávöxtun sjóðsins á síðasta ári.
- Tillögur til breytinga á samþykktum Tryggingarsjóðs, ef borist hafa.
- Lýst tilnefningu stjórnar.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og áheyrnarfulltrúa fyrir næsta starfsár.
- Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.